Dagur 4 - kvöld

IMG_2435

Að velja sér diska í leikstofunni

Heiðdís hefur verið nokkuð hress í allan dag. Fær enn sama skammt af verkjalyfjum og það á ekkert að fara að "trappa" hana niður fyrr en seinna í vikunni. Hún fékk heimsóknir í dag. Amma og afi komu og einnig fjölskyldan af Bárugötunni. Pabbi og Elín komu seinni partinn og við fengum þær fréttir þegar kvöldvaktin mætti að ún þyrfti að skipta um stofu - fara af einkastofu yfir á tvíbýlisstofu!! Við vorum frekar leið yfir þessu öll sömul - sérstaklega þar sem búið var að segja að hún yrði á sömu stofunni allan tímann. Heiðdís tjáði sig nú lítið um málið, en auðséð að henni finnst þetta frekar fúlt.

IMG_2437
Amma og afi í heimsókn

Við stóðum því í flutningum um tíma á deildinni í dag. Það er enginn annar sjúklingur í hinu rúminu, enn sem komið er. Svona er lífið á sjúkrahúsinu - ekkert við þessu að gera. Mín er alla vega alsæl með að vera komin í tölvusamband við umheiminn og við Elín kvöddum hana á kafi í msn-inu um kvöldmatarleytið. Þau feðgin ætla að gista saman í nótt á nýju stofunni.

IMG_2448

Heiðdís, Elín og Bjarki inni á nýju stofunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Það er greinilega allt að potast í rétta átt...eðlilega gengur það hægt að en þetta kemur allt

Ragnheiður , 4.12.2007 kl. 19:58

2 identicon

Hæ hæ Heiðdís mín

 Gott að aðgerðin gekk vel og mikið rosalega ertu dugleg, algjör hetja

 Hafðu það gott elsku engillinn minn

 Kveðja Ragna

Ragna frænka (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gúnna

Höfundur

Gúnna

 

www.flickr.com/gudmunda

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 014
  • 014
  • 017
  • 020.CR2
  • 019

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband