Dagur 4 - morgunn

Heiðdís er miklu hressari í dag. Ekki eins slæmir verkir og aðeins meira þrek. Borðaði reyndar mjög lítið í morgun. Það kemur! Fékk tvo lækna í heimsókn áðan.  Allt eðlilegt - og nú á leiðin til bata bara að liggja upp á við. Happy Vonum að það standist. Við erum búnar að fara í heimsókn á 1. hæðina í skólann og leikstofuna. Hún valdi sér og fékk lánaða diska. Í skólastofunni fékk hún krossgátur. Trilluðum svo til baka, þe. Heiðdís í hjólastól og ég ýtti stólnum með annarri og lyfja-súlunni með hinni. HmmmmGetLostkemur allt með æfingunni, verð komin með meiraprófið í svona akstri fljótlega. 

Pólski ræstitæknirinn var að störfum þegar komum til baka. Bað hana skúra/þrífa vel gólfið. Ekki skyldi hún eitt orð í íslenskunni - látbragðið kemur sér vel. Heiðdís steinsofnuð. Búin á því eftir brölt morgunsins. Þarf að safna kröftum. Komin með tölvu inn á stofu og getur nú spjallað við vini og vandamenn á msn.

Bless í bili.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku Heiðdís María og þið öll. 

Það er frábært að heyra að allt er á rétti leið. Hugsum til ykkar. Kveðja úr mosó

      Sædís og co

Sædís Gísladóttir (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 11:17

2 identicon

Hææj Heiðdís

Gott að þú ert loksins farin í þessa aðgerð ! Ég meina að það er ekkert gaman að þér líði svona illa og hafir svona verki í bringunni, það er nú alls ekki gaman En gott að þér líður betur núna

Endilega bloggaðu um alla dagana á spítalanum og vonandi kemstu fljótt aftur heim  ! Plz viltu láta mig vita þegar þú kemur heim?!

Er með 38,5 stiga hita og gubbupest ojj ! Fer ekkert í skólann á morgun og ég ætla að prófa þá að fara inná msn og gá hvort þú sért inná til að tala við þig ! Þú sefur nú samt svo mikið út ásamt því að þú þarft að sofa útaf aðgerðini þannig ég ætla ekki að fara voðalega snemma á msn...

Þarftu að vera í hjólastól ?!  Þú ert nú samt svo létt að það er ekkert erfitt að ýta þér !

En jæja... hlakka til að sjá þig !!!

Kveðja Edda Steinunn...

P.S. Þegar ég er orðin frísk og þér líður vel get ég komið að heimsækja þig á spítalann...

Edda Steinunn (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 22:55

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tveimur og ellefu?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Gúnna

Höfundur

Gúnna

 

www.flickr.com/gudmunda

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 014
  • 014
  • 017
  • 020.CR2
  • 019

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband