Færsluflokkur: Menntun og skóli

Gleðilegt sumar

Ég hef verið ósköp löt við að blogga undanfarið. Les þó reglulega skrif vina og renni yfir hvað iðnustu bloggararnir eru að segja.  Er á námskeiði þessa dagana í photoshop og vefsíðugerð. Ofsalega gaman - en því miður lítill tími til að æfa sig :) Svo er eins og heilasellurnar séu ekki eins viðbragðsfljótar og þær voru í "gamla daga". Þetta er líka í fyrsta skipti sem ég  þarf að nota gleraugu í skóla....arg! En þetta eru smámunir hjá því hvað það er GAMAN að vera að læra - elska svona heilaleikfimi (hef sko ekki farið í ræktina allan mánuðinn). Ég held að það sé á margan hátt heilsusamlegra að þjálfa toppstykkið en maga, rass og læri þegar aldurinn fer að færast yfir. Ok, eða allavega sameina þessa þjálfun.

Óska ykkur öllum gleðilegs sumars og þakka veturinn.

Gleðilegt sumar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


MM eða FM ?

þrettándabrenna

 Sem íbúi í Mosfellsbæ og foreldri gleðst ég mjög yfir þeirri frétt að hefja eigi byggingu framhaldsskóla í bænum.  Það skal heldur ekkert slórað hér; áætlað að hefja skólastarf strax á næsta áriSmile Ég óska bæjarbúum til hamingju með þennan áfanga og hlakka til að fylgjast með uppbyggingunni. En hvað á barnið að heita: MM (Menntaskólinn í Mosfellsbæ) eða FM (Fjölbrautaskóli Mosfellsbæjar)?

 

IMG_8640

Þessir krakkar eru nú í 7. bekk

og verða því í hópi fyrstu nemenda nýja skólans

 

 

 


mbl.is Framhaldsskóli í Mosfellsbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Gúnna

Höfundur

Gúnna

 

www.flickr.com/gudmunda

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 014
  • 014
  • 017
  • 020.CR2
  • 019

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 31073

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband