4.2.2008 | 13:50
Útskrifuð - næstu 3 árin!
Já, svona líður tíminn - allt í einu kominn febrúar og engin færsla hér í rúman mánuð. Þetta blogg var upphaflega stofnað til að leyfa vinum og vandamönnum að fylgjast með Heiðdísi Maríu í tengslum við aðgerðina sem hún fór í 30. nóvember sl. Nú er daman útskrifuð - næstu þrjú árin! Já, hún á að koma aftur eftir 3 ár og þá mun spöngin verða fjarlægð úr brjóstkassanum.
Batinn gengur vel. Hún hefur tvisvar heimsótt sjúkraþjálfara, sem er mjög ánægður með framfarirnar. Einnig var Bjarni læknir ánægður með hana við útskrift, í byrjun janúar. Hún fékk smá æfingaprógram hjá sjúkraþjálfaranum, sem ætlað er til að styrkja þá vöðva sem verið hafa í "afslöppun". Reyndar er mín bara farin að skella sér í leikfimi og sund í skólanum Sumt þarf hún reyndar að varast til að byrja með, sérstaklega harkalegar hópíþróttir en kennararnir eru með allt á hreinu og leyfa henni að stjórna þjálfuninni í samræmi við getu. Það þurfti smá átak til að komast á réttan kjöl hvað námið varðaði, en eins og þeir sögðu í Eyjum í den: þetta kemur allt með kalda vatninu!:)
Heiðdís og fjölskylda þakka ykkur öllum fyrir að fylgjast með, fyrir góðar kveðjur og óskir. Bless í bili :)
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Gúnna
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með þetta. Gangi ykur vel.
Steingerður Steinarsdóttir, 5.2.2008 kl. 10:41
Flott hjá þér Heiðdís batinn og allur fyrri styrkur kemur smátt og smátt.
Þetta er náttúrulega engin framistaða hjá mömmu að blogga ekkert í heilan mánuð.
En henni er fyrirgefið því hún hefur ábyggilega haft um nóg að hugsa og gera.
Villi Kalli (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 09:25
Gangi ykkur öllum vel og til hamingju með góðu fréttirnar og batann!
Ruth Ásdísardóttir, 9.2.2008 kl. 10:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.