15.12.2007 | 12:58
Daglegt líf
Í gær var hálfur mánuður liðinn frá aðgerð á Heiðdísi. Hún finnur enn mikið til - en tekur verkjalyf reglulega. Í fyrstu átti hún erfitt með að setjast sjálf upp í rúminu og þarf stundum enn hjálp við það. Finnst gott að hafa fullt af koddum á bak við sig.
Í gærdag bökuðum við smákökur og Heiðdís pakkaði inn jólagjöfum.
Í gærkvöldi fór hún í fyrsta skipti út eftir spítaladvöl. Ekki var það nú lengra en í sjoppuna, þar sem keyptur var ís og leigður diskur.
Í nótt vaknaði ég við að hún var að kveinka sér mjög mikið. Þá hafði hún sofnað á bakinu og snúið sér á hægri hliðina, en þar er spöngin saumuð við rifbein. Miklir verkir hjá henni, en tók pillu og náði að sofa lengi í morgun.
Núna er hún farin með pabba í smá jólastúss og jólagjafakaup. Hún var eitt sólskinsbros, enda búin að hlakka til alla vikuna. Litla systir "ógeðslega" fúl hér heima að fá ekki að fara með - en nú er tími leyndó-kaupa.
Í kvöld er ætlunin að skreyta jólatréð
Á manudaginn förum við til sjúkraþjálfara í Hafnarfirði. Hann er víst sérfræðingur í þjálfun fólks eftir svona aðgerð.
Góða helgi!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:01 | Facebook
Um bloggið
Gúnna
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Æ, blessuð stelpan. Þetta hlýtur að vera erfitt. Vonandi gengur þetta allt vel.
Steingerður Steinarsdóttir, 17.12.2007 kl. 14:27
Gleðileg jól þið öll og megi nýja ári verða Heiðdísi farsælt og gott.
Steingerður Steinarsdóttir, 23.12.2007 kl. 09:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.